Fara í efni

Viljar Niu með nýtt lag

Viljar Niu með nýtt lag

Viljar Már Hafþórsson, eða Viljar Niu eins og hann kallar sig er rappari sem hóf nám í deildinni Skapandi Tónlist síðastliðið haust.  Viljar hefur sent frá sér þó nokkur lög á undanförnum árum,  Lagið Possessed kom út núna um helgina, en í því lagi sér Viljar um pródúseringu, hljóðblöndun og masteringu, auk þess að ljá raddinu rödd sína.

Lagið er fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu sem Viljar er að vinna og stefnir á að gefa út fyrir þrítugsafmælið sitt, sem er 13. júní.

Possessed er komið á helstu streymisveitur.  Hér má hlusta á lagið á Spotify.

Lagið er líka komið á spilunarlista skapandi tónlistar

Fyrr á árinu sendi Viljar frá sér lagið Tek upp byssu, og gerði ansi hreint skemmtilegt myndband við það, þar sem hann fer í heimsókn til ömmu sinnar.  Myndbandið má sjá hér: