Fara í efni

Hljómborðsfræði

Í hljómborðsfræði er nemendum kennd grunntækni í hljómborðsleik samtvinnað með tónfræði og nótnalestri.  Nemendur læra þessi atriði í gegnum æfingar og verkefni í tíma.  Kennslan fer fram í hljómborðsveri tónlistarskólans, þar sem nemendur vinna sín verkefni á rafmagnshljómborð undir beinni leiðsögn kennara.

Unnið er með tónfræðilegan þátt námsins á töflu, í virkum samskiptum á milli kennara og nemenda.

Námsgögn eru námsefni eftir Ástvald Traustason, Hljómar í bókstaflegum skilningi, bækur 1 og 2

Að lokinni haustönn á ári eitt, á nemandi að geta lesið einfaldar laglínur og hljómatákn og spilað með báðum höndum: hljómar í vinstri hendi og laglínur í hægri hendi, ásamt því að hafa öðlast þekkingu á helstu grunnatriðum tónfræði.  Að lokinni vorönn á nemandi að geta lesið nokkuð flóknari laglínur, hryn og hljómatákn og spilað með báðum höndum: bassarödd í vinstri hendi á móti hljómum með laglínu í hægri hendi. Nemandi á einnig að hafa öðlast, fyrir utan almenna tónfræði, nokkra innsýn í grunnþætti hljómfræði.